|
Æfingar á vorönn eru að hefjast. Byrjendur og lengra komnir, drífið ykkur í fjörið. Fyrstu æfingar hvers flokks eru eftirfarandi: Kríli, laugardaginn 7. janúar kl. 10:00 Börn - yngri (6-9 ára), þriðjudaginn 10. janúar kl. 17:30 Börn - eldri (10-12 ára), mánudaginn 9. janúar kl. 17:30 Unglingar (13-16 ára), mánudaginn 9. janúar kl. 18:30 Byrjendur (15 ára og eldri), þriðjudaginn 10. janúar kl. 18:30 Meistaraflokkur, fimmtudaginn 5. janúar kl. 18:30 |
|
Þriðjudagur, 01 Nóvember 2011 17:31 |
|
Laugardaginn 5. nóvember verður haldin sameiginleg júdóæfing fyrir krakka á aldrinum 9-14 ára. Æfingin mun fara fram í húsnæði Ármanns og standa frá kl. 10-16. Frá 12-14 verður haldinn sameiginlegur málsverður í húsakynnum ÍSÍ í boði Júdósambands Íslands.
|
|
LAST_UPDATED2 |
|
Lesa meira...
|
|
Föstudagur, 21 Október 2011 15:10 |
|
Reykjavíkurmótið 2011 verður haldið á morgun, laugardag 22.10.2011, og er mótið í þetta skiptið á forræði JR. Skráningu lýkur í dag og vigtun keppenda verður svo síðar í dag á milli klukkan 18 og 20. Samkvæmt JR hefst keppni kl. 10 í aldursflokkum 11-14 en nánari tímasetningar og dagskrá verður auglýst strax að loknum skráningarfresti. Tilkynnið þátttöku til ykkar þjálfara eða til yfirþjálfara Yoshihko Iura sem fyrst. |
|
LAST_UPDATED2 |
|
Lesa meira...
|
|
|
Mánudagur, 07 Nóvember 2011 17:35 |
Íslandsmótið í brasilísku Jiu Jitsu var haldið í fjórða sinn í dag. Í kvennaflokki varð Anna Soffía Víkingsdóttir úr Ármanni hlutskörpust og í karlaflokki bar Sighvatur Magnús Helgason úr Mjölni sigur úr býtum. Rúmlega 50 keppendur frá sex félögum voru mættir til leiks í Laugardalnum í dag. Frá þessu greina vefmiðlarnir Mbl.is og Vísir.is.
|
|
Lesa meira...
|
|
Föstudagur, 28 Október 2011 09:57 |
 Sveinbjörn Iura mun taka þátt í B-mótaröð evrópska júdósambandsins um næstu helgi sem fram fer í Boras í Svíþjóð, Swedish Open Judo Tournament. Sveinbjörn er bæði Íslands- og Norðurlandameistari í sínum þyngdarflokki, -81kg. Á mótinu mun hann etja kappi við nokkra af sterkustu júdómönnum heims.
|
|
LAST_UPDATED2 |
|
Lesa meira...
|
|
Miðvikudagur, 05 Október 2011 17:56 |
|
Haustmót Júdósambands Íslands fyrir yngri en 20 ára var haldið á dögunum í Garðabæ og birtum við mynd af sigurvegurunum, þeim Eysteini, Kristjáni og Elfari. (1) Eysteinn Finnssson var í 1.sæti í -66kg í 19ára og yngri. (2) Kristján Ríkarður Vernharðsson var 2.sæti í -46kg í 13-14ára. (3) Elfar Davíðsson var 2.sæti í -50kg í 13-14ára. |
|
LAST_UPDATED2 |
|
|
|
|
|
|
Síða 1 af 21 |